Um Okkur

AÐ BIRTA ER BESTUN

Við hjálpum þínu fyrirtæki að auka sýnileika

OKKAR MARKMIÐ

Okkar markmið er að veita þínu fyrirtæki besta árangurinn fyrir þínar birtingar fyrir lægri kostnað. Án nákvæmra markaðsrannsókna verða birtingaáætlanir og sölustrategía aldrei betri en ágiskun byggð á góðu innsæi. Til þess að byggja upp arðvænlegan viðskiptamannagrunn sem fyrirtæki þitt getur átt í langtímasambandi við er nauðsynlegt að láta fagmenn með mikla reynslu greina fyrir þig markaðinn. Við erum til staðar fyrir þig.

Þekking

Við vinnum með viðskiptavinum okkar að markaðsgreiningu eftir vörumerkjum og vöruflokkum og finnum út hvað það er í neyslu neytandans sem skiptir þig máli til að hámarka árangur.

Skilvirkni

Þú nýtur góðs af miðlægum birtingaáætlunum sem eru uppfærðar og aðgengilegar í rauntíma. Þú veist nákvæmlega hvar þín birting er, á hvaða miðli og á hvaða tíma.

Árangur

Bestun veitir viðskiptavinum af öllum stærðum og gerðum ráðgjöf, sniðna að þörfum hvers fyrirtækis. Viðskiptavinir njóta afraksturs af reynslu og þekkingu Bestunar á markaðnum.

TEYMIÐ

Lúðvík Jónasson

Framkvæmdastjóri
Ferill hans spannar yfir 20 ára reynslu í auglýsingabransanum og frá stofnun hefur Lúðvík bestað allar birtingar.

Dagný Eir

Umsjón & Birtingar
Hefur lokið MA í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum, diplóma í Fjölmiðlafræði ásamt grunnnámi í Viðskiptafræði.

Jón Benjamín

Fjármál
Hefur lokið MA í viðskiptafræði. Jón sinnir bókhaldi ásamt tilfallandi verkefnum.

HÉR ERUM VIÐ

Við erum staðsett í Turnahvarfi 6H